Fara í efni

Fréttir

Starf héraðsskjalavarðar laust til umsóknar
28.05.2014

Starf héraðsskjalavarðar laust til umsóknar

Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir laust til umsóknar starf héraðsskjalavarðar á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga. Héraðsskjalavörður er forstöðumaður Héraðsskjalasafns Skagfirðinga. Hann leiðir starfsemi safnsins og sér um fjárhagslegan rekstur þess.
Ný lög um skjalasöfn samþykkt
28.05.2014

Ný lög um skjalasöfn samþykkt

Á alþingi voru nýverið samþykkt ný lög um opinber skjalasöfn á Íslandi. Frumvarpið felur í sér nokkrar breytingar á starfsemi safnanna, sem munu verða skýrari þegar reglugerðir hafa verið samdar í tengslum við nýju lögin. Hægt er að sjá lagatextann með því að smella hér. http://www.althingi.is/altext/143/s/pdf/1260.pdf
Sauðárkrókur
03.09.2013

Um 2000 manns sjá sýningu Kristjáns C. Magnússonar

Ljósmyndir úr eigu Kristjáns C. Magnússonar hafa verið til sýnis í Safnahúsinu í allt sumar og hafa um 2000 manns ritað nafn sitt í gestabók. Viljum við þakka gestum komuna og allar þær upplýsingar sem við höfum fengið um þær myndir sem hafa verið til sýnis.
Nýjar myndir á Ljósmyndavefnum
22.11.2012

Nýjar myndir á Ljósmyndavefnum

Að undanförnu hefur verið unnið að því að setja inn ljósmyndir á vef safnsins. Nú hafa bættst við 500 ljósmyndir, sem safninu bárust frá fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins Feykis og eru myndir frá blaðinu nú tæplega 1100. Hægt er að sjá myndirnar á vefnumwww.skagafjordur.is/myndir, velja Héraðsskjalasafn og fara að leita. Með því að setja Feykir í leitarreit er hægt að kalla fram allar myndir úr því safni.