Fara í efni

Kambastígur 6

Byggingarár: 1925

Heiti: Bræðratunga

Hönnuður:

Fyrsti eigandi: Þorsteinn Björnsson

Kambastígur 6. SFA 2018.

Saga: Húsið Bræðratunga við Kambastíg 6 er timburhús á steyptum grunni sem var byggt árið 1925 af bræðrunum Tómasi og Þorsteini Björnssonum. Húsið hefur tekið nokkrum breytingum í gegnum tíðina en það hefur verið stækkað og lengt til norðurs og þaki þá breytt um leið. Gluggafjölda og gerð þeirra hefur verið breytt og steyptar hafa verið svalir á austurhlið húss. Í dag er húsið klætt með hömruðu járni og gengið er inn í það á suðurstafni.

Varðveislugildi - metið 2018:

        • Listrænt gildi/byggingarlist - Miðlungs - Lítið og einfalt járnklætt timburhús frá millistríðsárunum.
        • Menningarsögulegt gildi - Miðlungs - Ágætt dæmi um íbúðarhús alþýðufólks á millistríðsárunum.
        • Umhverfisgildi - Miðlungs - Húsið stendur í Kristjánsklauf og hluti götumyndar þar.
        • Upprunalegt gildi - Lágt - Húsið hefur breyst nokkuð sem hefur rýrt gildi þess.
        • Tæknilegt ástand - Lágt - Húsið þarfnast viðhalds.
        • Varðveislugildi - Miðlungs - Húsið hefur varðveislugildi sem dæmi um alþýðuhús frá millistríðsárunum og er hluti sérstakrar
          götumyndar Kristjánsklaufar.

Heimild: Húsakönnun Sauðárkróks: Norðurhluti gamla bæjar. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. 2018.

Bein tenging: Umfjöllun í skýrslu