Fara í efni

Fréttir

Brekka
24.08.2026

Veist þú um gamlar ljósmyndir af Hofsósi?

Um þessar mundir er verið að vinna húsa- og fornleifaskráningu fyrir Hofsós. Í ljós hefur komið að safnið á fáar gamlar ljósmyndir af Brekkunni og Bakkanum. Við biðlum því til fólks að láta okkur vita af slíkum myndum, sérstaklega þar sem hús og umhverfi eru greinanleg, en það myndi hjálpa okkur mikið í þessari rannsóknarvinnu.
Skjöl úr fórum Indriða G. Þorsteinssonar
21.08.2026

Skjöl úr fórum Indriða G. Þorsteinssonar

Í dag fengum við góða heimsókn þegar Arnaldur Indriðason kom með gögn úr fórum föður síns, Indriða G. Þorsteinssonar. Skjöl þessi eru viðbót við myndarlegt skjalasafn Indriða sem varðveitt er á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga en skrá yfir gögnin er að finna á skráningarsíðu safnsins. Að auki afhenti Arnaldur tvær ritvélar sem Indriði notaði við ritstörf sín en þær verða afhentar Byggðasafni Skagfirðinga.
Styttur opnunartími 11.08.2026
10.08.2026

Styttur opnunartími 11.08.2026

Þann 11.08.2026 neyðumst við til að skerða opnunartíma Héraðsskjalasafns Skagfirðinga. Þann dag verður opið frá 9:00 til 11:30. Héraðsskjalasafnið biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og bendum þeim sem þurfa að leita til safnsins að senda tölvupóst á skjalasafn@skagafjordur.is.
Lokun vegna sumarleyfa
16.06.2026

Lokun vegna sumarleyfa

Héraðsskjalasafn Skagfirðinga verður lokað vikuna 22.-26. júní vegna sumarleyfa starfsmanna. Frá 1. júlí verður opnunartíma skjalasafnsins frá kl. 9-12 og 13-15, alla virka daga.
Útför Sveins Rúnars Sigfússonar
26.05.2026

Útför Sveins Rúnars Sigfússonar

Á morgun kveðjum við starfsfélaga okkar, Svein Rúnar Sigfússon. Héraðsskjalasafnið verður því lokar kl 12:00. Sendum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Ljósmyndagreining í maí
20.05.2026

Ljósmyndagreining í maí

Ljósmyndagreining verður haldin 21. maí næstkomandi kl. 14:00 í Safnahúsinu.
Ljósmyndagreining í apríl
14.04.2026

Ljósmyndagreining í apríl

Þá er komið að næstu ljósmyndagreiningu. Við hittumst kl. 14:00 á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga, 16. apríl næstkomandi.
Málþing um Indriða G. Þorsteinsson
12.04.2026

Málþing um Indriða G. Þorsteinsson

Héraðsskjalasafn og Héraðsbókasafn Skagfirðinga halda málþing um Indriða G. Þorsteinsson rithöfund þann 12. apríl kl. 15:00.
Ljósmyndagreining í mars
16.03.2026

Ljósmyndagreining í mars

Þá er komið að næstu ljósmyndagreiningu. Við hittumst kl. 14:00 á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga, 19. mars næstkomandi. Myndirnar má sjá hér á heimasíðunni. Við höldum áfram að greina ljósmyndir úr fórum Björns Björnssonar.
Dalakarl - stafrænt afrit
20.02.2026

Dalakarl - stafrænt afrit

Síðustu ár hefur Héraðsskjalasafn Skagfirðinga unnið að því að búa til stafrænt afrit af völdum gögnum úr safnkostinum. Nú má nálgast sveitablaðið "Dalakarlinn" sem Lestrarfélag Silfrastaðasóknar gaf út á árunum 1928-1929 á skráningarsíðu okkar.