24.08.2026
Veist þú um gamlar ljósmyndir af Hofsósi?
Um þessar mundir er verið að vinna húsa- og fornleifaskráningu fyrir Hofsós. Í ljós hefur komið að safnið á fáar gamlar ljósmyndir af Brekkunni og Bakkanum. Við biðlum því til fólks að láta okkur vita af slíkum myndum, sérstaklega þar sem hús og umhverfi eru greinanleg, en það myndi hjálpa okkur mikið í þessari rannsóknarvinnu.