Um þessar mundir er verið að vinna húsa- og fornleifaskráningu fyrir Hofsós. Í ljós hefur komið að safnið á fáar gamlar ljósmyndir af Brekkunni og Bakkanum. Við biðlum því til fólks að láta okkur vita af slíkum myndum, sérstaklega þar sem hús og umhverfi eru greinanleg, en það myndi hjálpa okkur mikið í þessari rannsóknarvinnu.
Við þekkjum til vefsins hofsosingur.is og höfum sannarlega notið góðs af ljósmyndunum þar en við teljum að það hljóti að vera til fleiri myndir sem enn hafi ekki komið fyrir augu almennings. Endilega hafið samband við okkur á héraðsskjalasafninu (skjalasafn@skagafjordur.is) ef þið eigið gamlar ljósmyndir af Hofsósi sem þið væruð til í að leyfa okkur að skoða.