Fara í efni

Skjalasafn Guðjóns Ingimundarsonar íþróttakennara

Héraðsskjalasafn Skagfirðinga hefur lokið við að skrá einkaskjalasafn Guðjóns Ingimundarsonar íþróttakennara á Sauðárkróki. Í skjalasafni Guðjóns má finna mikið magn ljósmynda og skjala sem tengjast þátttöku hans í félagsmálum í Skagafirði. Í tilefni af útgáfu Skagfirðingarbókar 2020 er skjalaskráin og ljósmyndir hans gerðar aðgengilegar á skráningarsíðu safnsins: http://atom.skagafjordur.is/index.php/is-hsk-n00279.