Fara í efni

Dalakarl - stafrænt afrit

Síðustu ár hefur Héraðsskjalasafn Skagfirðinga unnið að því að búa til stafrænt afrit af völdum gögnum úr safnkostinum. Nú má nálgast sveitablaðið "Dalakarl" sem Lestrarfélag Silfrastaðasóknar gaf út á árunum 1928-1929 á skráningarsíðu okkar, sjá Dalakarl. Helstu markmið með útgáfunni var að þjálfa íbúa á svæðinu í að setja fram skoðanir sínar og fjalla um sín áhugamál. Í ritunum má finna sögur, skoðanaskipti, frásagnir og ljóðmál.