Fara í efni

Bókakynning í Safnahúsi

Skúli Björn Gunnarsson og Sölvi Sveinsson koma í Safnahúsið og kynna nýjar bækur sínar. Í bókinni Landslag kynslóðanna fléttar Skúli Björn minningum og sögum saman við örnefni og landslag til að koma vitneskjunni til næstu kynslóðar. Sölvi sem er margreyndur skólamaður fjallar vítt og breitt um skólamál í bók sinni Skólabók. Er leikur að læra? Hér veltir Sölvi fyrir sér ýmsum spurningum sem brenna á okkur öllum, t.d. hvað er góður skóli, hvað er menntun og ekki síst hvað er framundan?