Fara í efni

Sýning á verkum Stefáns B. Pedersen í Safnahúsi

Sýning á verkum Stefáns B. Pedersen stendur nú yfir í Safnahúsi á meðan á Sæluviku stendur. Árið 2018 afhenti Stebbi Ped, eins og hann var ávallt kallaður, ljósmyndasafn sitt til Héraðsskjalasafns Skagfirðinga. Hér er um stórt safn að ræða enda afrakstur ævistarfs Stebba sem stofnaði ljósmyndastofu á Sauðárkróki árið 1958. Sýningin er sett upp í tilefni þess að nú fyrsti hluti ljósmyndasafnsins aðgengilegur á skráningarvef safnsins. Framundan er svo opinn ljósmyndafundur þar sem við biðlum til almennings að koma og hjálpa okkur að greina ljósmyndirnar hans Stebba. Við hvetjum alla að koma við í Safnahúsinu og skoða sýninguna en hún er opin á opnunartíma bókasafnsins.

Hér má nálgast safnið á skráningarvefnum: Stefán B. Pedersen.